VIS Monorepo
Uppbygging á nýjum vef og vefþjónustum. Storybook og sjálfvirk útgáfa.
Hugbúnaðarsérfræðingur M.Sc. / kerfisarkitekt. Sérhæfi mig í TypeScript/React (Next.js), .NET Core, DevOps, REST API og bakendaþróun.
Forritunarferðalagið mitt hófst árið 1995 þegar ég skrifaði fyrstu línurnar í Assembler á Z80, samhliða námi í rafeindavirkjun við Iðnskólann í Reykjavík þar sem tölvur voru aukagrein. Áhuginum fylgdi ég áfram, lauk B.Sc.-prófi í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2001 og M.Sc.-prófi í Computer Science frá Högskolan í Skövde í Svíþjóð árið 2003. Síðan þá hef ég unnið hjá ýmsum fyrirtækjum sem forritari og tekist á við ólík verkefni í SAP, Java, JavaScript, C++, C# og bakendaþjónustum á borð við SOAP og REST.
Veflausnir fyrir fyrirtæki og stofnanir, öryggi og skalanleiki. Verkefni hjá ýmsum stofnunum og fyrirtækjum eins og Fjármálaráðuneyti, Seðlabanka Íslands, VÍS og Tryggingastofnun Ríkisins.
Forritari í SAP/ABAP um árabil í tryggingakerfi Sjóvá og tengingar við önnur kerfi. Einnig góð þekking á SAP Human Resource Management (HR) og launakerfi.
Fastráðinn hjá fyrirtækjum eins og Íslandsbanka og Teymi hf.
Uppbygging á nýjum vef og vefþjónustum. Storybook og sjálfvirk útgáfa.
Forritun í C# fyrir bakendaþjónustur. JWT, rate limiting, OpenAPI. Tenging við grunnkerfi.
Best er að senda mér línu á netfangið mitt eða á LinkedIn. Ég svara yfirleitt innan dags.